‏ Psalms 97

1Drottinn er konungur orðinn! jörðin fagni, eyjafjöldinn gleðjist. 2Ský og sorti eru umhverfis hann, réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis hans, 3eldur fer fyrir honum og bálast umhverfis spor hans. 4Leiftur hans lýsa um jarðríki, jörðin sér það og nötrar. 5Björgin bráðna sem vax fyrir Drottni, fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar. 6Himnarnir kunngjöra réttlæti hans, og allar þjóðir sjá dýrð hans. 7Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar, þeir er stæra sig af falsguðunum. Allir guðir falla fram fyrir honum. 8Síon heyrir það og gleðst, Júdadætur fagna sakir dóma þinna, Drottinn. 9Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir gjörvallri jörðunni, þú ert hátt hafinn yfir alla guði. 10Drottinn elskar þá er hata hið illa, hann verndar sálir dýrkenda sinna, frelsar þá af hendi óguðlegra. 11Ljós rennur upp réttlátum og gleði hjartahreinum. 12Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn.
Copyright information for Icelandic
The selected Bible will not be clickable as it does not support the Vocabulary feature. The vocabulary is available by hovering over the verse number.

Everyone uses cookies. We do too! Cookies are little bits of information stored on your computer which help us give you a better experience. You can find out more by reading the STEPBible cookie policy.