‏ Psalms 61

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Eftir Davíð. 2Heyr, ó Guð, hróp mitt, gef gaum bæn minni. 3Frá endimörkum jarðar hrópa ég til þín, meðan hjarta mitt örmagnast. Hef mig upp á bjarg það, sem mér er of hátt. 4Leið mig, því að þú ert orðinn mér hæli, öruggt vígi gegn óvinum. 5Lát mig gista í tjaldi þínu um eilífð, leita hælis í skjóli vængja þinna. [Sela] 6Því að þú, ó Guð, hefir heyrt heit mín, þú hefir uppfyllt óskir þeirra er óttast nafn þitt. 7Þú munt lengja lífdaga konungs, láta ár hans vara frá kyni til kyns. 8Hann skal sitja um eilífð frammi fyrir Guði, lát miskunn og trúfesti varðveita hann. [ (Psalms 61:9) Þá vil ég lofsyngja nafni þínu um aldur, og efna heit mín dag frá degi. ]
Copyright information for Icelandic
The selected Bible will not be clickable as it does not support the Vocabulary feature. The vocabulary is available by hovering over the verse number.

Everyone uses cookies. We do too! Cookies are little bits of information stored on your computer which help us give you a better experience. You can find out more by reading the STEPBible cookie policy.