‏ Psalms 121

1Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? 2Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. 3Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. 4Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels. 5Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. 6Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. 7Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. 8Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu.
Copyright information for Icelandic
The selected Bible will not be clickable as it does not support the Vocabulary feature. The vocabulary is available by hovering over the verse number.