‏ Psalms 16

1Davíðs-miktam. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. 2Ég segi við Drottin: ,,Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.`` 3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu _ á þeim hefi ég alla mína velþóknun. 4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir. 5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum. 6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir, og arfleifð mín líkar mér vel. 7Ég lofa Drottin, er mér hefir ráð gefið, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra. 8Ég hefi Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur. 9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst, og líkami minn hvílist í friði, 10því að þú ofurselur Helju eigi líf mitt, leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina. 11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.
Copyright information for Icelandic
The selected Bible will not be clickable as it does not support the Vocabulary feature. The vocabulary is available by hovering over the verse number.

Everyone uses cookies. We do too! Cookies are little bits of information stored on your computer which help us give you a better experience. You can find out more by reading the STEPBible cookie policy.