‏ Psalms 123

1Til þín hef ég augu mín, þú sem situr á himnum. 2Eins og augu þjónanna mæna á hönd húsbónda síns, eins og augu ambáttarinnar mæna á hönd húsmóður sinnar, svo mæna augu vor á Drottin, Guð vorn, uns hann líknar oss. 3Líkna oss, Drottinn, líkna oss, því að vér höfum fengið meira en nóg af spotti. 4Sál vor hefir fengið meira en nóg af háði hrokafullra, af spotti dramblátra.
Copyright information for Icelandic
The selected Bible will not be clickable as it does not support the Vocabulary feature. The vocabulary is available by hovering over the verse number.