Mark 14
1Nú voru tveir dagar til páska og hátíðar ósýrðu brauðanna. Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu handsamað Jesú með svikum og tekið hann af lífi. 2En þeir sögðu: ,,Ekki á hátíðinni, þá gæti orðið uppþot með lýðnum.`` 3Hann var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum. 4En þar voru nokkrir, er gramdist þetta, og þeir sögðu sín á milli: ,,Til hvers er þessi sóun á smyrslum? 5Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara og gefa fátækum.`` Og þeir atyrtu hana. 6En Jesús sagði: ,,Látið hana í friði! Hvað eruð þér að angra hana? Gott verk gjörði hún mér. 7Fátæka hafið þér jafnan hjá yður og getið gjört þeim gott, nær þér viljið, en mig hafið þér ekki ávallt. 8Hún gjörði það, sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrirfram smurt líkama minn til greftrunar. 9Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess, sem hún gjörði, til minningar um hana.`` 10Júdas Ískaríot, einn þeirra tólf, fór þá til æðstu prestanna að framselja þeim hann. 11Þegar þeir heyrðu það, urðu þeir glaðir við og hétu honum fé fyrir. En hann leitaði færis að framselja hann. 12Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna, þegar menn slátruðu páskalambinu, sögðu lærisveinar hans við hann: ,,Hvert vilt þú, að vér förum og búum þér páskamáltíðina?`` 13Þá sendi hann tvo lærisveina sína og sagði við þá: ,,Farið inn í borgina, og ykkur mun mæta maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum, 14og þar sem hann fer inn, skuluð þið segja við húsráðandann: ,Meistarinn spyr: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?` 15Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum og til reiðu. Hafið þar viðbúnað fyrir oss.`` 16Lærisveinarnir fóru, komu inn í borgina og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar. 17Um kvöldið kom hann með þeim tólf. 18Þegar þeir sátu að borði og mötuðust sagði Jesús: ,,Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig, einn sem með mér etur.`` 19Þeir urðu hryggir við og sögðu við hann, einn af öðrum: ,,Ekki er það ég?`` 20Hann svaraði þeim: ,,Það er einn þeirra tólf. Hann dýfir í sama fat og ég. 21Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.`` 22Þá er þeir mötuðust, tók hann brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf þeim og sagði: ,,Takið, þetta er líkami minn.`` 23Og hann tók kaleik, gjörði þakkir og gaf þeim, og þeir drukku af honum allir. 24Og hann sagði við þá: ,,Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga. 25Sannlega segi ég yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins til þess dags, er ég drekk hann nýjan í Guðs ríki.`` 26Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins. 27Og Jesús sagði við þá: ,,Þér munuð allir hneykslast, því að ritað er: Ég mun slá hirðinn, og sauðirnir munu tvístrast. 28En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu.`` 29Þá sagði Pétur: ,,Þótt allir hneykslist, geri ég það aldrei.`` 30Jesús sagði við hann: ,,Sannlega segi ég þér: Nú í nótt, áður en hani galar tvisvar, muntu þrisvar afneita mér.`` 31En Pétur kvað enn fastar að: ,,Þó að ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér.`` Eins töluðu þeir allir. 32Þeir koma til staðar, er heitir Getsemane, og Jesús segir við lærisveina sína: ,,Setjist hér, meðan ég biðst fyrir.`` 33Hann tók með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes. Og nú setti að honum ógn og angist. 34Hann segir við þá: ,,Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið.`` 35Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll til jarðar og bað, að sú stund færi fram hjá sér, ef verða mætti. 36Hann sagði: ,,Abba, faðir! allt megnar þú. Tak þennan kaleik frá mér! Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.`` 37Hann kemur aftur og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: ,,Símon, sefur þú? Gastu ekki vakað eina stund? 38Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.`` 39Aftur vék hann brott og baðst fyrir með sömu orðum. 40Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra. Og ekki vissu þeir, hvað þeir ættu að segja við hann. 41Í þriðja sinn kom hann og sagði við þá: ,,Sofið þér enn og hvílist? Nú er nóg. Stundin er komin. Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna. 42Standið upp, förum! Sá er í nánd, er mig svíkur.`` 43Um leið, meðan hann var enn að tala, kemur Júdas, einn þeirra tólf, og með honum flokkur manna frá æðstu prestunum, fræðimönnunum og öldungunum, og höfðu þeir sverð og barefli. 44Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: ,,Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum og færið brott í tryggri vörslu.`` 45Hann kemur, gengur beint að Jesú og segir: ,,Rabbí!`` og kyssti hann. 46En hinir lögðu hendur á hann og tóku hann. 47Einn þeirra, er hjá stóðu, brá sverði, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað. 48Þá sagði Jesús við þá: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? 49Daglega var ég hjá yður í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum. En ritningarnar hljóta að rætast.`` 50Þá yfirgáfu hann allir lærisveinar hans og flýðu. 51En maður nokkur ungur fylgdist með honum. Hann hafði línklæði eitt á berum sér. Þeir vildu taka hann, 52en hann lét eftir línklæðið og flýði nakinn. 53Nú færðu þeir Jesú til æðsta prestsins. Þar komu saman allir æðstu prestarnir, öldungarnir og fræðimennirnir. 54Pétur fylgdi honum álengdar, allt inn í garð æðsta prestsins. Þar sat hann hjá þjónunum og vermdi sig við eldinn. 55Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu vitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann, en fundu eigi. 56Margir báru þó ljúgvitni gegn honum, en framburði þeirra bar ekki saman. 57Þá stóðu nokkrir upp og báru ljúgvitni gegn honum og sögðu: 58,,Vér heyrðum hann segja: ,Ég mun brjóta niður musteri þetta, sem með höndum er gjört, og reisa annað á þrem dögum, sem ekki er með höndum gjört.` `` 59En ekki bar þeim heldur saman um þetta. 60Þá stóð æðsti presturinn upp og spurði Jesú: ,,Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?`` 61En hann þagði og svaraði engu. Enn spurði æðsti presturinn hann: ,,Ertu Kristur, sonur hins blessaða?`` 62Jesús sagði: ,,Ég er sá, og þér munuð sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma í skýjum himins.`` 63Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: ,,Hvað þurfum vér nú framar votta við? 64Þér heyrðuð guðlastið. Hvað líst yður?`` Og þeir dæmdu hann allir sekan og dauða verðan. 65Þá tóku sumir að hrækja á hann, þeir huldu andlit hans, slógu hann með hnefunum og sögðu við hann: ,,Spáðu!`` Eins börðu þjónarnir hann. 66Pétur var niðri í garðinum. Þar kom ein af þernum æðsta prestsins 67og sá, hvar Pétur var að orna sér. Hún horfir á hann og segir: ,,Þú varst líka með manninum frá Nasaret, þessum Jesú.`` 68Því neitaði hann og sagði: ,,Ekki veit ég né skil, hvað þú ert að fara.`` Og hann gekk út í forgarðinn, [en þá gól hani.] 69Þar sá þernan hann og fór enn að segja við þá, sem hjá stóðu: ,,Þessi er einn af þeim.`` 70En hann neitaði sem áður. Litlu síðar sögðu þeir, er hjá stóðu enn við Pétur: ,,Víst ertu einn af þeim, enda ertu Galíleumaður.`` 71En hann sór og sárt við lagði: ,,Ég þekki ekki þennan mann, sem þér talið um.`` 72Um leið gól hani annað sinn, og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt við hann: ,,Áður en hani galar tvisvar muntu þrisvar afneita mér.`` Þá fór hann að gráta.
Copyright information for
Icelandic
The selected Bible will not be clickable as it does not support the Vocabulary feature. The vocabulary is available by hovering over the verse number. Everyone uses cookies. We do too! Cookies are little bits of information stored on your computer which help us give you a better experience. You can find out more by reading the STEPBible cookie policy.
Welcome to STEP Bible
A simplified search is now available!Here are the frequently asked questions:
How do I read passages in Bibles?
- How do I look up a passage?
- How do I see three Bibles at once?
- How do I find a parallel gospel passage?
- How do I follow a Bible reading plan?
- How do I also see a commentary?
1) Click the Resource icon.
2) Click the resource for parallel gospel passage
2) Click the resource for parallel gospel passage
1) Click the Resource icon.
2) Plans for 1/2/3 years, chronological, Jewish etc
2) Plans for 1/2/3 years, chronological, Jewish etc
1) Click the Bible button.
2) Click on Commentaries
2) Click on Commentaries
How do I find words and phrases?
- How do I find words or topics?
- How do I search only some books in the Bible?
- How do I find a Greek or Hebrew word?
- How do I find a word only where it relates to a topic?
- How do I find more about search?
Video guide
1) Click on the search button
2) Click on Range
3) Select the books that you wish to search
1) Click on the search button
2) Click on Range
3) Select the books that you wish to search
Video guide
1) Click on the search button
2) Click on the Hebrew or Greek tab
3) Type in the Greek/Hebrew word in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) View corresponding row to see Greek/Hebrew translation of the word
1) Click on the search button
2) Click on the Hebrew or Greek tab
3) Type in the Greek/Hebrew word in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) View corresponding row to see Greek/Hebrew translation of the word
Video guide
1) Click on the search button
2) Click on the English tab
3) Type in the topic in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) Click on one of the words or topics listed
1) Click on the search button
2) Click on the English tab
3) Type in the topic in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) Click on one of the words or topics listed
How do I do a word study?
- What information can I find about a word?
- Meaning: how the word is used throughout the Bible
- Dictionary: academic details about the word
- Related words: similar in meaning or origin
- Grammar: (only available for some Bibles)
- Why do only some Bibles have clickable words?
- What does “~20x” or “Frequency” mean?
- Why do some words have dropdown next to the frequency number?
- Where do I find the maps?
- How do I get the word frequency for a chapter or a book?
When you click on a word, the detailed lexicon opens with:
'Vocabulary' Bibles link the translation to Greek & Hebrew. So far, only some Bibles have this vocabulary feature. They are shown in the Bible select screen with the letter 'V'.
It is the number of occurrences of a word in the Bible. Click on it to see them all in the selected Bible(s).
This reveals different forms for some words and names. These details are often interesting to scholars, eg the word 'beginning' in Genesis.
Video guide
1st method:
Click on a place name then on the Map button in the detailed lexicon.
2nd method:
1) Click the Resource icon.
2) Click on "Places in the Bible"
1st method:
Click on a place name then on the Map button in the detailed lexicon.
2nd method:
1) Click the Resource icon.
2) Click on "Places in the Bible"
Video guide
1) Click on the analysis icon.
2) Click on the "Selected passage" button if no analysis is shown.
1) Click on the analysis icon.
2) Click on the "Selected passage" button if no analysis is shown.
How do I find more information on original languages?
- How do I see Greek/Hebrew vocabulary for my Bible?
- How do I see Greek/Hebrew transliteration for my Bible?
- How do I see Greek/Hebrew vocabulary for a verse?
- How can I view multiple Bibles together as an Interlinear?
- How do I see the various versions of the Greek OT?
- How do I display the color-coded grammar?
Video guide
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the Vocab feature
3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Greek / Hebrew". Original language vocab will be shown.
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the Vocab feature
3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Greek / Hebrew". Original language vocab will be shown.
Video guide
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the Vocab feature
3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Transliteration".
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the Vocab feature
3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Transliteration".
Video guide
1) Click on the verse number to list the words and meanings
2) Hover over or click on a word for more details about the word
1) Click on the verse number to list the words and meanings
2) Hover over or click on a word for more details about the word
Video guides
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select two Bible with the vocabulary feature
3) Click on the Option button, then click Interlinear”. Interlinear will be shown.
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select two Bible with the vocabulary feature
3) Click on the Option button, then click Interlinear”. Interlinear will be shown.
1) Click on the Bible translation button
2) Select “Ancient” for the language
3) Scroll down to see the Greek OT translations
Examples
2) Select “Ancient” for the language
3) Scroll down to see the Greek OT translations
Examples
Video guide
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the grammar feature
3) Click on "G" or "Grammar" at the navigation bar. The text will then be color coded.
Examples
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the grammar feature
3) Click on "G" or "Grammar" at the navigation bar. The text will then be color coded.
Examples
© STEPBible - 2024