Ezekiel 36
1En þú mannsson, spá þú um Ísraels fjöll og seg: Þér Ísraels fjöll, heyrið orð Drottins! 2Svo segir Drottinn Guð: Af því að óvinirnir hafa hrópað yfir yður: ,Hæ! Eilíf auðn! Það er orðið vor eign!` 3fyrir því spá þú og seg: Svo segir Drottinn Guð: Fyrir þá sök, vegna þess að menn eyddu yður og ágirntust yður alla vega, að þér yrðuð eign hinna þjóðanna, og af því að þér komust í orðræðu manna og urðuð fyrir ámæli fólks, _ 4fyrir því heyrið orð Drottins Guðs, þér Ísraels fjöll! Svo segir Drottinn Guð við fjöllin og hæðirnar, við hvammana og dalina, við eyðirústirnar og við yfirgefnu borgirnar, sem orðnar eru að herfangi og að spotti fyrir hinar þjóðirnar, sem umhverfis yður eru, _ 5fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sannlega tala ég í minni brennandi afbrýði til hinna þjóðanna og alls Edóms, sem hafa ætlað sér land mitt til eignar, með alls hugar fögnuði og innilegri fyrirlitning, til þess að þeir gætu rekið íbúana burt og rænt það. 6Spá þú þess vegna um Ísraelsland og seg við fjöllin og hæðirnar, við hvammana og dalina: Svo segir Drottinn Guð: Sjá, ég hefi talað í ástríðufullri heift, af því að þér hafið orðið að þola háðungar þjóðanna. 7Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Ég hef upp hönd mína og sver: Þjóðirnar, sem umhverfis yður eru, skulu vissulega verða að þola háðung sína. 8En þér, Ísraels fjöll, skjótið greinum yðar og berið ávöxt yðar handa lýð mínum Ísrael, því að bráðum munu þeir koma heim. 9Því að sjá, ég mun koma til yðar og snúa mér að yður, og þér munuð verða yrkt og sáin. 10Og ég mun fjölga fólkinu á yður, gjörvöllum Ísraelslýð, og borgirnar verða byggðar og rústirnar reistar að nýju. 11Og ég vil fjölga mönnum og skepnum á yður, og það skal margfaldast og verða frjósamt. Og ég mun láta yður verða byggð, eins og þér voruð í fyrri daga, og auðsýna yður enn meira gott en áður fyrr, til þess að þér viðurkennið, að ég er Drottinn. 12Og ég mun láta menn á yður ganga, lýð minn Ísrael. Þeir skulu taka þig til eignar, svo að þú verðir arfleifð þeirra, og þú munt ekki framar gjöra þá barnlausa. 13Svo segir Drottinn Guð: Af því að menn sögðu við yður: ,Þú varst mannæta og varst vön að gjöra þjóð þína barnlausa`, 14fyrir því skalt þú ekki framar mönnum farga og ekki framar gjöra þjóð þína barnlausa, _ segir Drottinn Guð. 15Og ég skal ekki framar láta þig heyra háðungar heiðingjanna og þú skalt ekki framar þurfa að þola smánanir þjóðanna og þú skalt ekki framar gjöra þjóð þína barnlausa, _ segir Drottinn Guð.`` 16Orð Drottins kom til mín, svohljóðandi: 17,,Mannsson, þegar Ísraelsmenn bjuggu í landi sínu, þá saurguðu þeir það með breytni sinni og verkum sínum. Breytni þeirra var fyrir mér eins og óhreinleiki konu, sem hefir tíðir. 18Og ég úthellti reiði minni yfir þá, sökum þess blóðs, er þeir höfðu úthellt í landinu, og af því að þeir höfðu saurgað það með skurðgoðum sínum. 19Og ég tvístraði þeim meðal þjóðanna, og þeir dreifðust út um löndin. Eftir breytni þeirra og verkum þeirra dæmdi ég þá. 20Og þeir komu til hinna heiðnu þjóða. Hvar sem þeir komu, þar vanhelguðu þeir mitt heilaga nafn, með því að mönnum fórust svo orð um þá: ,Þetta er lýður Drottins, og þó urðu þeir að fara burt úr landi sínu!` 21Og mig tók það sárt, að Ísraelsmenn skyldu svo vanhelga heilagt nafn mitt meðal þjóðanna, hvar sem þeir komu. 22Seg því við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn Guð: Eigi er það yðar vegna, Ísraelsmenn, að ég læt til mín taka, heldur vegna míns heilaga nafns, sem þér hafið vanhelgað meðal þjóðanna, hvar sem þér komuð. 23Og ég mun helga mitt hið mikla nafn, sem vanhelgað var meðal þjóðanna, það er þér vanhelguðuð meðal þeirra, til þess að þjóðirnar viðurkenni, að ég er Drottinn, _ segir Drottinn Guð _ þá er ég auglýsi heilagleik minn á yður í augsýn þeirra. 24Ég mun sækja yður til þjóðanna og saman safna yður úr öllum löndum og flytja yður inn í yðar land. 25Ég mun stökkva hreinu vatni á yður, svo að þér verðið hreinir, ég mun hreinsa yður af öllum óhreinindum yðar og skurðgoðum. 26Og ég mun gefa yður nýtt hjarta og leggja yður nýjan anda í brjóst, og ég mun taka steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður hjarta af holdi. 27Og ég mun leggja yður anda minn í brjóst og koma því til vegar, að þér hlýðið boðorðum mínum og varðveitið setninga mína og breytið eftir þeim. 28Og þér skuluð búa í landinu, sem ég gaf feðrum yðar, og þér skuluð vera mín þjóð og ég skal vera yðar Guð. 29Ég mun frelsa yður frá öllum óhreinindum yðar, og ég mun kalla á kornið og margfalda það, og ekkert hallæri mun ég láta yfir yður koma. 30Og ég mun margfalda ávöxtu trjánna og gróða vallarins, til þess að þér þurfið ekki að þola brigsl meðal heiðnu þjóðanna fyrir hallæri. 31Þá munuð þér minnast yðar vondu breytni og verka yðar, sem ekki voru góð, og yður mun bjóða við sjálfum yður sökum misgjörða yðar og viðurstyggða. 32Eigi er það yðar vegna, að ég læt til mín taka, segir Drottinn Guð, það skuluð þér vita! Blygðist og skammist yðar fyrir breytni yðar, þér Ísraelsmenn! 33Svo segir Drottinn Guð: Á þeim degi, er ég hreinsa yður af öllum misgjörðum yðar, þá mun ég aftur láta borgirnar verða byggðar, og þá skulu fallin húsin rísa úr rústum. 34Og hið eydda land mun yrkt verða, í stað þess að það áður var eins og auðn í augum allra umfarenda. 35Þá mun sagt verða: ,Þetta land, sem komið var í auðn, er orðið eins og Edens garður, og borgirnar, sem orðnar voru að rústum, sem eyddar voru og umturnaðar, eru nú víggirtar og byggðar.` 36Þá munu þær þjóðir, sem eftir eru orðnar kringum yður, viðurkenna, að ég, Drottinn, hefi reist af nýju það, sem umturnað var, og gróðursett það, sem var í eyði lagt. Ég, Drottinn, hefi talað það og mun framkvæma það. 37Svo segir Drottinn Guð: Þá bón skal ég enn veita Ísraelsmönnum: Ég skal gjöra þá svo mannmarga sem hjörð er að sauðum. 38Eins og helgidómurinn fyllist af sauðum, eins og Jerúsalem fyllist af sauðum á hátíðunum, svo munu eyðiborgirnar fyllast af mannahjörðum, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn.``
Copyright information for
Icelandic
Welcome to STEP Bible
A simplified search is now available!Here are the frequently asked questions:
How do I read passages in Bibles?
- How do I look up a passage?
- How do I see three Bibles at once?
- How do I find a parallel gospel passage?
- How do I follow a Bible reading plan?
- How do I also see a commentary?
1) Click the Resource icon.
2) Click the resource for parallel gospel passage
2) Click the resource for parallel gospel passage
1) Click the Resource icon.
2) Plans for 1/2/3 years, chronological, Jewish etc
2) Plans for 1/2/3 years, chronological, Jewish etc
1) Click the Bible button.
2) Click on Commentaries
2) Click on Commentaries
How do I find words and phrases?
- How do I find words or topics?
- How do I search only some books in the Bible?
- How do I find a Greek or Hebrew word?
- How do I find a word only where it relates to a topic?
- How do I find more about search?
Video guide
1) Click on the search button
2) Click on Range
3) Select the books that you wish to search
1) Click on the search button
2) Click on Range
3) Select the books that you wish to search
Video guide
1) Click on the search button
2) Click on the Hebrew or Greek tab
3) Type in the Greek/Hebrew word in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) View corresponding row to see Greek/Hebrew translation of the word

2) Click on the English tab
3) Type in the topic in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) Click on one of the words or topics listed
1) Click on the search button
2) Click on the English tab
3) Type in the topic in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) Click on one of the words or topics listed
How do I do a word study?
- What information can I find about a word?
- Meaning: how the word is used throughout the Bible
- Dictionary: academic details about the word
- Related words: similar in meaning or origin
- Grammar: (only available for some Bibles)
- Why do only some Bibles have clickable words?
- What does “~20x” or “Frequency” mean?
- Why do some words have dropdown next to the frequency number?
- Where do I find the maps?
- How do I get the word frequency for a chapter or a book?
When you click on a word, the detailed lexicon opens with:
'Vocabulary' Bibles link the translation to Greek & Hebrew. So far, only some Bibles have this vocabulary feature. They are shown in the Bible select screen with the letter 'V'.
It is the number of occurrences of a word in the Bible. Click on it to see them all in the selected Bible(s).
This reveals different forms for some words and names. These details are often interesting to scholars, eg the word 'beginning' in Genesis.
Video guide
1st method:
Click on a place name then on the Map button in the detailed lexicon.
2nd method:
1) Click the Resource icon.
2) Click on "Places in the Bible"
1st method:
Click on a place name then on the Map button in the detailed lexicon.
2nd method:
1) Click the Resource icon.
2) Click on "Places in the Bible"
Video guide
1) Click on the analysis icon.
2) Click on the "Selected passage" button if no analysis is shown.
1) Click on the analysis icon.
2) Click on the "Selected passage" button if no analysis is shown.
How do I find more information on original languages?
- How do I see Greek/Hebrew vocabulary for my Bible?
- How do I see Greek/Hebrew transliteration for my Bible?
- How do I see Greek/Hebrew vocabulary for a verse?
- How can I view multiple Bibles together as an Interlinear?
- How do I see the various versions of the Greek OT?
- How do I display the color-coded grammar?
Video guide
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the Vocab feature
3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Greek / Hebrew". Original language vocab will be shown.

3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Transliteration".

1) Click on the verse number to list the words and meanings
2) Hover over or click on a word for more details about the word
1) Click on the verse number to list the words and meanings
2) Hover over or click on a word for more details about the word
Video guides
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select two Bible with the vocabulary feature
3) Click on the Option button, then click Interlinear”. Interlinear will be shown.

2) Select “Ancient” for the language
3) Scroll down to see the Greek OT translations
Examples
2) Select “Ancient” for the language
3) Scroll down to see the Greek OT translations
Examples
Video guide
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the grammar feature
3) Click on "G" or "Grammar" at the navigation bar. The text will then be color coded.

© STEPBible - 2024