‏ Amos 7

1Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Það voru komnar engisprettulirfur, þá er háin tók til að spretta eftir konungsslátt. 2En er þær höfðu gjöretið grasið af jörðinni, sagði ég: ,,Drottinn Guð, æ fyrirgef! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!`` 3Þá iðraði Drottin þessa. ,,Það skal ekki verða!`` sagði Drottinn. 4Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Drottinn Guð kom til þess að hegna með eldi, og hann svalg hið mikla djúp og eyddi landið. 5Þá sagði ég: ,,Æ, Drottinn Guð, lát af! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!`` 6Þá iðraði Drottin þessa. ,,Þetta skal ekki heldur verða!`` sagði Drottinn. 7Hann lét þessa sýn bera fyrir mig: Sjá, Drottinn stóð uppi á lóðréttum múrvegg og hélt á lóði. 8Og Drottinn sagði við mig: ,,Hvað sér þú, Amos?`` Ég svaraði: ,,Lóð.`` Þá sagði Drottinn: ,,Sjá, ég mun lóð nota mitt á meðal lýðs míns Ísraels, ég vil eigi lengur umbera hann. 9Hæðir Ísaks skulu í eyði lagðar verða og helgidómar Ísraels eyddir verða, og ég vil rísa gegn Jeróbóams ætt með reiddu sverði.`` 10Amasía prestur í Betel sendi boð til Jeróbóams Ísraelskonungs og lét segja: ,,Amos kveikir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Landið fær eigi þolað öll orð hans. 11Því að svo hefir Amos sagt: ,Jeróbóam mun fyrir sverði falla og Ísrael mun herleiddur verða burt úr landi sínu.``` 12Síðan sagði Amasía við Amos: ,,Haf þig á burt, vitranamaður, flý til Júdalands! Afla þér þar viðurværis og spá þú þar! 13En í Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að hér er konunglegur helgidómur og ríkismusteri.`` 14Þá svaraði Amos og sagði við Amasía: ,,Ég er enginn spámaður, og ég er ekki af spámannaflokki, heldur er ég hjarðmaður og rækta mórber. 15En Drottinn tók mig frá hjarðmennskunni og sagði við mig: ,Far þú og spá þú hjá lýð mínum Ísrael.` 16Og heyr því orð Drottins: Þú segir: ,Þú mátt eigi spá gegn Ísrael né láta orð þín streyma yfir Ísaks niðja.` 17Fyrir því segir Drottinn svo: ,Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.```
Copyright information for Icelandic
The selected Bible will not be clickable as it does not support the Vocabulary feature. The vocabulary is available by hovering over the verse number.

Everyone uses cookies. We do too! Cookies are little bits of information stored on your computer which help us give you a better experience. You can find out more by reading the STEPBible cookie policy.